
Flotun sem skilar sléttu gólfi
Fagleg flotun skilar sléttum fleti tilbúnum fyrir parket, flísar eða önnur loka-gólfefni.
Flötur tilbúinn fyrir gólfefni.
Flotun er lokaskrefið í að undirbúa steypugólf fyrir endanlegt gólfefni. Sjálfrennandi floteiningu er hellt út og jöfnuð þannig að flöturinn verður sléttur.
Niðurstaðan er tilbúinn flötur fyrir parket, flísar eða önnur gólfefni sem þú vilt leggja á gólfið.
- Skilar fullkomna sléttu gólfi
- Tilbúið undir öll gerðir gólfefna
- Fljótþornandi og endingargott
Af hverju að velja Gólfhitalausnir í flotun á gólfum?
Undirbúningur
- •Áður en flotað er er mikilvægt að fjarlægja allt efni af gólfinu.
- •Ef lakk eða epoxy er á gólfinu þarf að slípa.
- •Mikilvægt er að flotið nái viðloðun við fyrra yfirborð.
Aukavinna
- •Við rukkum fyrir alla þá aukavinnu sem tefur fyrir okkur og sem við teljum nauðsynlega til að skila góðu verki.
- •Dæmi: Almenn tiltekt, pússun yfir húsgögnum, múrvinna.
Hvað er innifalið í heilflotun?
- •Yfirborð grunnað og svamplistum komið fyrir ef þarf að loka rými af.
- •Ein umferð flotun þar sem flotað er yfir afmarkað svæði þannig að flotið nái samfelldri áferð.
- •Taka skal fram ef þarf að rétta gólfið eða bara slétta fyrir gólfefni.
- •Eftir heilflotun er hægt að leggja gólfefni.
Sjónflot (flotið sem gólfefni)
- •Ef flotið á að vera gólfefnið sjálft (sjónflot) þá er það annar pakki.
- •Efni er ekki innifalið í verðinu en pokinn er á 3.226 kr. + vsk.
- •Áætlun um efnisþörf er gefin þegar nægar upplýsingar liggja fyrir.
Að lokum viljum við minna á að ekkert verk er eins og okkur þykir best að yfirfara gólfin áður en hafist er með viðskiptavini svo ekkert komi á óvart.



Aðrar þjónustur hjá Gólfhitalausnum

Gólfhitafræsing & rör
Ný og einföld tækni í fræsun gerir okkur kleift að koma hitalögnum snögglega fyrir í flestöll steinsteypu, innandyra sem og utandyra.

Gólfslípun
Slípun á steinsteyptu gólfi fjarlægir misfellur og opnar steypuna fyrir góða viðloðun við framhaldsvinnu.

Flotun á gólfum
Fagleg flotun skilar sléttum fleti tilbúnum fyrir parket, flísar eða önnur loka-gólfefni.

Sögun fyrir neysluvatnslögnum
Nákvæm sögun í steypuna fyrir neysluvatnslögnum og aðrar pípulagnir gerð með snyrtilegum hætti.
