Um Gólfhitalausnir - vinnusvæði með gólfhitalögnum

Ný tækni í fræsingu frá stofnun 2016

Markmið okkar er að veita hagnýtar og áreiðanlegar hitalausnir fyrir íslensk heimili og fyrirtæki.

Gólfhitalausnir voru stofnaðar árið 2016 með nýja tækni í fræsingu að leiðarljósi. Við tökum að okkur hitalagnir fyrir flest steinsteypt gólf, innandyra sem og utandyra.

Með nýrri og einfaldri tækni í fræsun er hægt að koma hitalögnum snögglega fyrir í flestalla steinsteypu. Gólfhitafræsing fyrir hitarörum með fullri vinnu er 5.250 kr. fm + vsk. Það felur í sér gólf uppteiknað, fræsingu, allt ryk fjarlægt, ásamt 16 mm gólfhitarörum og lagningu þeirra.

Við fræsum 20–22 mm niður fyrir rörum sem tryggir fullkomna dýpt og vernd fyrir hitarörin.

Reynsla frá 2016
Þjónustum allt landið
Allt ryk fjarlægt
16 mm gæðarör

Fyrirtækjaupplýsingar

FyrirtækiGólfhitalausnir / S5 verk ehf.
Kennitala540720-0100
Óska eftir tilboði